Wednesday, September 25, 2013

Niðurgreiðslur æfingagjalda

Til foreldra og forráðamanna:

Skráningar og greiðsla æfingagjalda eru nú í fullum gangi og eru forráðamenn minntir á að nýta sér niðurgreiðsluna frá Hafnarfjarðarbæ. 
Það skiptir því miklu máli að skrá iðkendur sem fyrst til að fá fulla niðurgreiðslu. Eins og er, er enn opið fyrir niðurgreiðsluna í september og því um að gera fyrir þá sem enn eiga eftir að ganga frá skráningu og æfingagjöldum, að ganga frá því strax. 
Um mánaðarmótin sept/okt dettur niðurgreiðsla fyrir september út. Eftir það, gildir niðurgreiðslan frá þeim degi sem er skráð.
Ef það er eitthvað óljóst í þessu, þá endilega hafið samband við Bryndísi í síma: 525-8702 eða á netfangið: bryndis@haukar.is 

Wednesday, September 18, 2013

Næstu dagar

Æfingar verða næstu daga með unglinga- og drengjaflokki sem hér segir;

Fimmtudag 19.sept
Bjarkarhús 18.00-19.00

Laugardag 21.sept
Ásvellir 13.00-14.00

Sunnudag 22. sept
Ásvellir 17.00-18.30

Mánudag 23. sept
Ásvellir 21.00-22.00


Pétur

Saturday, September 14, 2013

Æfingaleikur og æfing

Æfing á morgun 15. september kl. 13.00-14.30.

Æfingaleikur við Breiðablik mánudaginn 16. september kl. 18.00 í Smáranum í Kópavogi.


Pétur

Friday, September 13, 2013

Laugardagur 14. september

Æfing kl. 13.00-14.15 á morgun vegna Evrópuleiks í handbolta.

Allir að mæta.


Pétur

Saturday, September 7, 2013

Ekki æfing á sunnudag

Það fellur niður æfing á sunnudaginn 8. september vegna Haukadagsins, sjá heimasíðu Hauka.

Næsta æfing er styrktaræfing á mánudaginn kl. 20.00 á Ásvöllum. 

Næsta körfuboltaæfing verður á þriðjudaginn 10. september í Bjarkarhúsinu kl. 18.30-21.00.

Pétur