Wednesday, September 25, 2013

Niðurgreiðslur æfingagjalda

Til foreldra og forráðamanna:

Skráningar og greiðsla æfingagjalda eru nú í fullum gangi og eru forráðamenn minntir á að nýta sér niðurgreiðsluna frá Hafnarfjarðarbæ. 
Það skiptir því miklu máli að skrá iðkendur sem fyrst til að fá fulla niðurgreiðslu. Eins og er, er enn opið fyrir niðurgreiðsluna í september og því um að gera fyrir þá sem enn eiga eftir að ganga frá skráningu og æfingagjöldum, að ganga frá því strax. 
Um mánaðarmótin sept/okt dettur niðurgreiðsla fyrir september út. Eftir það, gildir niðurgreiðslan frá þeim degi sem er skráð.
Ef það er eitthvað óljóst í þessu, þá endilega hafið samband við Bryndísi í síma: 525-8702 eða á netfangið: bryndis@haukar.is 

No comments:

Post a Comment